| 10 hlutir sem þú vissir (kannski) ekki að væru hollir |
| Þriðjudagur, 29. Júlí 2008 00:00 |
|
1 Súkkulaði Allir vita að súkkulaði er heilsusamleg fæða. Því miður er það dökka, bitra gerðin, hollara en það sæta og rjómakennda. Súkkulaði inniheldur pólýphenól sem dregur úr sindurefnum sem aftur valda frumu- og erfðaefnisskemmdum, auk þess sem pólýphenól verndar hjartað. Vísindamenn við Harvard-háskóla rannsökuðu 8.000 bandaríska karlmenn og komust að því að þeir sem borðuðu súkkulaði allt að þrisvar í mánuði lifðu nær ári lengur en þeir sem borðuðu of mikið súkkulaði eða alls ekkert. Hófsemi virðist því vera lykillinn í súkkulaðiáti. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Morgunblaðið 29.07.2008 |
