| 1000 meðlimir á facebook |
| Fimmtudagur, 28. Janúar 2010 13:07 |
|
Í tilefni af því að hjartalif.is hefur undirgengist töluverðar útlitsbreytingar til að þjóna tilgangi sínum sem upplýsingavefur í almannaþágu betur, ákváðum við að setja kraft í fésbókarhópin og stefndum að 1000 meðlimum á fésbókinni í fyrstu lotu. Í gærkvöldi náðum við þessum merka áfanga og erum við mjög þakklát fyrir þessar frábæru undirtektir. Við höfum lengi velt því fyrir okkur hvernig við gætum verið með lifandi vef þar sem meginumræðan væri um hjartatengd málefni í víðasta skilningi þeirra orða. Með fésbókinni sáum við tækifæri til að vera með skemmtilegt form sem hentaði okkur . Með fésbókarhópnum skapast meiri nálægt og umræðan getur verið persónulegri auk þess sem fólk getur með einföldum hætti deilt sorgum sínum og sigrum með fólki sem hefur jafnvel svipaða sín á lífið. Auk þess getur hver og einn komið með innlegg tengla eða hvað eina sem viðkomandi finnst eiga þar heima. Það er Því ótrúlega skemmtilegt að fjöldin skuli vera komin yfir 1000. Ég hef verið þeirrar skoðunar að hópurinn þurfi að vera þetta stór til að geta skapað lifandi umræðu. Það er okkar von að fésbókarhópurinn geti verið farvegur upplýsinga og sýnilegur stuðningshópur fyrir þá sem á þurfa að halda. Það er auk þess okkar skoðun að það sé mikilvægt fyrir heimasíðu eins og hjartalíf að vera með þennan stóra hóp á bak við sig því við vitum að upplýsingar eru raunveruleg forvörn í baráttunni við hjarta og æðasjúkdóma.Århus 28.01.2010 Björn & Mjöll |
