| 12 E |
| Mánudagur, 25. Janúar 2010 18:37 |
|
Ég á mér minningabrot, en ég á erfitt með að raða þeim saman í tímaröð. Ég veit heldur ekki nákvæmlega hvort þessi minningabrot eru eitthvað sem ég raunverulega man eða eitthvað sem mér hefur verið sagt frá. Ég veit þó að morfínskammtarnir sem ég hafði fengið eftir aðgerðina voru farnir að segja til sín og ég var orðin dálítið ruglaður af öllu saman. Aðfaranótt laugardagsins náði þetta þó hámarki og sleit ég mig lausan við slöngur og dót og ætlaði heim. Ég man ekki mikið en mitt í öllu þessu á ég minningabrot þar sem mér fannst ég vera í Rússlandi og það stæði til að drepa mig og satt best að segja var þetta mjög raunverulegt og í alla staði óhugnarleg tilfinning, ég var skíthræddur. Annað brot af minningum á ég um pabba minn þar sem hann kom til mín á sjúkrabeðið og hélt í höndina á mér, það þótti mér vænt um og ég held ég hafi grátið. Mjöll var vakin og sofin yfir mér og sagði mér að þótt ég hefði verið ringlaður og lítið vitað í þennan heim né annan, kom ég henni og starfsfólki til að brosa. Í einu tilfellinu fór ég að segja henni frá stúlknakór sem ég hefði verið að hlusta á og hefði mér þótt það fagur söngur. Vitaskuld hafði engin stúlknakór verið þarna á ferðinni. Í annað skipti þegar ég framkallaði bros á þessu tímabili var þegar ég óskaði eftir því að fá að tala við íþróttafréttaritara mjög alvarlegur í bragði. Ekki kann ég neinar skýringar á þessum hugmyndum mínum nema ef vera skildi að ég hafi heyrt englasöng og hafi fundist það vera íþróttaafrek að lifa þetta allt saman af! Þarna urðu mér kannski enn ljósari afleiðingar mistakanna sem höfðu átt sér stað þegar ég fékk hjartaáfallið og í mér kraumaði reiði í garð þess læknis sem bar ábyrgð á mistökunum. Björn |
