| 130 greinast árlega með lungnakrabba |
| Fimmtudagur, 10. September 2009 07:29 |
|
Þetta segir Sigríður Ólína Haraldsdóttir, lungnasérfræðingur á lungnadeild Landspítalans og formaður Tóbaksvarnaráðs. Meirihluti sjúklinganna á lungnadeildinni reykir eða hefur reykt. Þeir þjást af lungnaþembu, lungnateppusjúkdómum og lungnakrabbameini, að sögn Sigríðar. Alls greinast um 130 manns með lungnakrabbamein á hverju ári á Íslandi að því er Sigríður greinir frá. „Vitað er að 90 prósent lungnakrabbameina eru vegna reykinga.“
Að sögn Sigríðar verða sjúklingar í mörgum tilfellum undrandi þegar þeim er greint frá því að lungnasjúkdómar þeirra stafi af reykingum. „Þeir segjast ekki hafa vitað að þetta væri svona hættulegt. Reykingar eru einnig einn aðaláhættuþáttur kransæðasjúkdóma og heilablóðfalls.“ |
