| 2 vikur í fjöldauppsögn á LSH |
| Miðvikudagur, 16. Apríl 2008 20:50 |
|
Boðað vaktafyrirkomulag fyrir skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga á Landsspítala hefur mætt andstöðu og af þeim 104, sem breytingin tekur til, hafa 96 sagt upp störfum. Hjúkrunarfræðingarnir ætla að ganga út á miðnætti 30 apríl - eða eftir hálfan mánuð.
Hjúkrunarfræðingarnir vinna á deildum þar sem 50-60 aðgerðir eru framkvæmdar á dag og alls ríflega 1400 í hverjum mánuði. Sú starfsemi mun raskast ef af uppsögnunum verður. |

Tæplega 100 hjúkrunarfræðingar á Landspítala standa enn fast við uppsagnir sínar. Þeir undrast að ekkert hafi verið fundað með þeim um stöðuna frá því 1.apríl.