Hjartaheill

logo hjartaheillLandssamtök hjartasjúklinga voru stofnuð 8. október 1983.
Stofnfélagar voru  230, flestir  hjartasjúklingar, vandamenn þeirra og velunnarar, en einnig voru þar læknar og hjúkrunarfólk. Árið 2012 var nafni samtakanna breytt í Hjartaheill.


Hlutverk Hjartaheilla er:
• að sameina hjartasjúklinga, aðstandendur þeirra og áhugafólk um heilbrigt hjarta
• að stuðla að betri heilsu og bættum lífsgæðum í íslensku samfélagi, með áherslu á framfarir í forvörnum, fræðslu og meðferð hjartasjúkdóma
• að standa vörð um hagsmuni og réttindi hjartasjúklinga
• að starfa faglega
• að framfylgja markmiðum samtakanna

Markmið Hjartaheilla til næstu 5 ára eru:
• að fjölga félagsmönnum í allt að 10.000
• virkja félagsmenn til öflunar nýrra félaga, t.d. með hvataverðlaunum
• nota heimasíðu og rafrænt fréttabréf
• að efla Hjartadaginn
• samvinna við Hjartavernd og Heilaheill, skipting hlutverka
• efna til viðburða um land allt á Hjartadaginn
• að styðja við GoRed verkefnið – Alþjóðlegt samstarf um konur og hjartasjúkdóma, Hjartadrottningar, starfshópur kvenna innan Hjartaheilla, verði tengiliður  
• að auka fjáröflunartekjur
• fjölgun félagsmanna mun auka tekjur og meðalaldur mun lækka
• gerð nýrra hjartamerkja og söluherferð í tengslum við Hjartadaginn
• sérstakar safnanir, sjónvarpssöfnun, sala sérhannaðra muna á netinu
• að efla tengsl og upplýsingaflæði við félagsmenn
• söfnun netfanga eldri félagsmanna – rafrænt fréttabréf
• efla heimasíðu Hjartaheilla

Framtíðarsýn Hjartaheilla:
• Hjartaheill verði öflug hagsmunasamtök á sviði heilbrigðismála á Íslandi með stóran og virkan hóp félagsmanna.

• Hjartaheill verði leiðandi við að bæta lífsgæði landsmanna með eflingu forvarna og fræðslu um hjartasjúkdóma.

Vefsíða Hjartaheilla er www.hjartaheill.is

.