| 70 til 100 uppsagnir á Landspítala? |
| Þriðjudagur, 27. Október 2009 09:15 |
|
Alls mun þetta leiða til fækkunar sem nemur 170-200 störfum. „Fyrsta skoðun okkar á fjárhagsáætlun næsta árs sýnir að þær aðgerðir sem við hófum nú í september síðastliðnum munu skila okkur rúmlega 1,5 milljörðum í sparnaði. Frekari breytingar í þjónustu og samdráttur, m.a. í sumarafleysingum, yfirvinnu, lokun ákveðinna deilda og breytingar á störfum munu skila okkur nálægt 1,7 milljörðum til viðbótar. Við höldum að þetta muni leiða til fækkunar sem nemur 170-200 störfum en vonum að ekki þurfi að segja upp öllum þessum fjölda. Með því að nýta okkur starfsmannaveltu spítalans ættu beinar uppsagnir að verða færri, eða á bilinu 70-100. Vinna við útfærslu á þessum tillögum stendur enn,“ segir hann. Björn segir að framkvæmdastjórn Landspítalans vinni nú að áætlun um reksturinn miðað við fyrirliggjandi fjárlög. Í þeirri vinnu er hugað að verkefni spítalans í heild en ekki hver áhrifin verða á mismunandi stéttir.
Í pistlinum þakkar Björn einnig starfsfólki Landspítalans fyrir frábæra framgöngu í flensufaraldrinum. |
