| 90 hjúkrunarfræðingar sætta sig ekki við sparnað sem hættir lífi og limum sjúklinga |
| Fimmtudagur, 13. Mars 2008 14:41 |
|
Multithumb found errors on this page: There was a problem loading image /u03/usrhome/hjartali/public_html/images/stories/skurdhjukrun.jpg
Um 90 skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum á spítalanum frá og með 1. maí. nk. vegna nýja vaktakerfisins, sem spítalayfirvöld segja tekið upp til þess að draga úr yfirvinnu. Þau segja að það sem vaki fyrir þeim sé að virða reglur um vinnuvernd og hvíldartíma. Erla Björk segir vinnuverndarsjónarmið ekki ráða ferðinni hjá stjórnendum spítalans, heldur krafa um 100 milljóna króna sparnað eftir að fjármálaráðherra hafi ákveðið tilfærslu 100 milljóna króna frá Landspítala til svokallaðra kragasjúkrahúsa. Hún segir hjúkrunarfræðingana ekki vilja aukna aukavinnu heldur “óbreytt fyrirkomulag og virðingu fyrir störfum okkar og lífi og limum sjúklinga okkar.”
Hingað til hafa hjúkrunarfræðingar á skurð- og svæfingadeild í Fossvogi verið á svokölluðum bundnum vöktum frá klukkan fimmtán til hálfátta. Þá hafa hjúkrunarfræðingarnir unnið fram eftir kvöldi, klárað allar fyrirliggjandi Með breyttu vaktafyrirkomulagi mun þetta verða veruleikinn alla daga vikunnar. Erla Björk segist geta talið upp fjöldann allan af sjúkdómum og slysum þar sem mínútur skipta sköpum um líf og dauða sjúklinga. Hún segir engar líkur á að hjúkrunarfræðingarnir dragi uppsagnir sínar til baka þó þeir vilji auðvitað frekar vinna áfram við sitt sérsvið.
“En þetta eru allt of miklar breytingar. Bæði fyrir okkur og sjúklingana okkar.” |

Erla Björk Birgisdóttir, trúnaðarmaður hjúkrunarfræðinga, segir að breytt vaktafyrirkomulag á skurð og gjörgæsludeildum Landspítalans lengi viðbragðstíma hjúkrunarfræðinga úr þremur mínútum í þrjátíu á nóttunni. “Undir mörgum kringumstæðum geta mínútur skipt sköpum um líf og dauða sjúklinga,” segir hún í viðtali við 24 stundir í dag.