| Á spítala fram yfir helgi |
| Miðvikudagur, 23. Júlí 2008 10:15 |
|
Guðmundur fékk hjartaáfall í fimmtugsafmælinu sínu á laugardaginn síðasta. Þá var hann staddur á veitingastaðnum Silfrinu í miðborg Reykjavíkur ásamt vinum og vandamönnum. Þegar hann mætti í veisluna um matarleytið fékk hann mikla verki. Að lokum þurfti að kalla til sjúkrabíl.
Í ljós kom að Mummi hafði fengið alvarlegt hjartaáfall og þurfti að gangast undir aðgerð undir eins. Fjölskyldan sat eftir og borðaði saman í von og ótta um að hugsanlega væru dagar Mumma taldir. Það var ekki fyrr en þau fengu eftirréttinn sem góðu fregnirnar bárust; aðgerðin heppnaðist vel og Mummi var á batavegi. Nánar í DV í dag. |
