| Actavis setur hjartalyf á markað hérlendis |
| Föstudagur, 30. Nóvember 2007 12:46 |
|
Samkvæmt upplýsingum frá Actavis er Valpress notað við háþrýstingi, nýlegu hjartadrepi og hjartabilun. Lyfið er þróað af Actavis og framleitt í lyfjaverksmiðju fyrirtækisins á Möltu.
Valpress er þriðja samheitalyfið sem Actavis setur á markað á Íslandi á einum mánuði en mígrenilyfið Sumacta og geðlyfið Míron Smelt komu á markað í nóvember. |
