| Að lifa með kransæðasjúkdóm |
| Þriðjudagur, 25. Ágúst 2009 10:50 |
|
Það er mikil lífsreynsla að greinast með alvarlegan sjúkdóm. Við verðum skyndilega meðvituð um okkar eigin veikleika og vanmátt gagnvart lífi og dauða. Fyrirvaralaust þurfum við að gangast undir rannsóknir og aðgerðir sem oft virka framandi og við kann að taka langvinn lyfjainntaka og krafa um breytingar á hegðun okkar og lífsmynstri. Undir þessum kringumstæðum er mikilvægt að skilja eðli sjúkdómsins og tileinka sér leiðir til þess að takast á við líkamlegar, tilfinningalegar og félagslegar afleiðingar hans. Stærsta áskorunin er að snúa lífsreynslu, sem er í eðli sínu neikvæð, yfir í jákvæðan farveg sem stuðlar að því að við verðum hraustari, betri og hamingjusamari einstaklingar. Heilsustöðin og Hjartamiðstöðin bjóða upp á námskeið fyrir einstaklinga sem greinst hafa með kransæðasjúkdóm. Námskeiðið ber heitið "Að lifa með kransæðasjúkdóm". Markmiðið er að auka skilning á eðli kransæðasjúkdómsins, áhættuþáttum, meðferðarmöguleikum, lyfjameðferð og áhrifum sjúkdómsins á daglegt líf. Sérstök áhersla verður lögð á næringarfræði, mataræði, hreyfingu, félagslega og tilfinningalega þætti svo sem kvíða, depurð, afstöðu og viðhorf til sjúkdómsins. Námskeiðið hefst 17. september næstkomandi og verður haldið í húsnæði Heilsustöðvarinnar og Hjartamiðstöðvarinnar, Holtasmára 1 í Kópavogi. Námskeiðið fer fram milli kl. 17-19 síðdegis, einu sinni í viku í 6 vikur, alls 8-12 tímar. Umsjónarmenn námskeiðsins eru Axel F. Sigurðsson hjartalæknir, Barbel Schmid félagsráðgjafi, Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur og Haukur Sigurðsson klíniskur sálfræðingur. Frekari upplýsingar um námskeiðið og námskeiðsgjald í síma Hjartamiðstöðvarinnar, 550 3030 |
