| Aðgát skal höfð |
| Föstudagur, 03. Október 2008 14:13 |
|
Mikilvægt er að fjölmiðlar og aðrir vandi þessa umræðu og hafi í huga að flutningur fregna af válegum atburðum er bestur ef jöfnum höndum er fjallað um lausnir vandans þannig að fólk geti brugðist sem best við. Það er brýnt að hafa í huga að óvönduð umræða um mál af þessu tagi er skaðleg heilsunni og því mikilvægt að vanda hana í hvívetna og láta hana ekki fara úr böndum.
Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins |
