| Aðgerðum ítrekað frestað |
| Þriðjudagur, 20. Nóvember 2007 13:27 |
|
Lyfjaherbergi deildarinnar er 2,4 fermetrar að stærð og segir Alma það ekki við hæfi á deild sem byggi á flóknum lyfjagjöfum. Þá þurfi að geyma dýr tæki deildarinnar víðs vegar um húsið, jafnvel á göngum þar sem tækjageymsla rúmi aðeins brot af þeim búnaði sem þarf. Alma hefur sjálf látið aðstandendum sjúklinga eftir skrifstofu sína. „Gjörgæsludeild er sérstök að því leyti að þar dvelja ættingjar sjúklinga mjög mikið og gista oft á spítalanum."
|
