| Aðlögunaraðferðir maka hjartaþega |
| Laugardagur, 05. Maí 2007 21:40 |
|
Multithumb found errors on this page: There was a problem loading image /u03/usrhome/hjartali/public_html/mambots/editors/tmedit/popups/InsertFile/images/ext/pdf_small.gif Þessi grein heitir eiginlega: Meðvitað skipulag á hvernig skuli takast á við stress hjálpar en afskiptaleysi hjálpar ekki: Aðlögunaraðferðir og þunglyndi hjá mökum hjartaþega... eða eitthvað í þá áttina. Tilgangurinn var að skoða þær aðferðir sem fólk notaði til að takast á við álag hjartaskiptianna og sjá hvort þær aðferðir hefðu áhrif á eða gætu sagt fyrir um hvort makarnir yrðu þunglyndir vegna álagsins. Skemmtileg grein þó niðurstöðurnar hafi nú ekki komið á óvart. Makarnir notuðu frekar aðferðir sem hjálpuðu þeim við að aðlagast þessum aðstæðum en aðferðir sem gerðu það ekki. Það kom í ljós að þeir sem voru þunglyndir voru frekar að aftengja sig aðstæðunum en að takast á við þær og einnig að þeir sem voru minna þunglyndir voru síður að takast á við aðstæðurnar með því að aftengjast þeim. Einnig kom í ljós að það að takast á við stressið á skipulagðan og meðvitaðan hátt var tengt því að upplifa minna álag. Sem sagt... það borgar sig að horfast í augu við það sem maður er að fara í gegnum og vera meðvitaður um það hvernig maður tekst á við það sem maður sér! |

Planning helps....pdf