| Aðskildu hjörtu síamstvíburasystra |
| Fimmtudagur, 05. Apríl 2007 00:00 |
|
Sex vikur eru síðan að stúlkurnar voru aðskildar og voru þær ótrúlega brattar þegar fjölmiðlar fengu að heimsækja þær á spítala þeirra í Bangkok í Tælandi í dag. Systurnar eru nú að verða tíu mánaða og voru foreldrar þeirra að vonum himinlifandi með hversu vel aðgerðin gekk. Stúlkurnar voru samvaxnar frá brjósti niður á kviðinn. Það sem gerði læknum sérstaklega erfitt fyrir er að hlutar af hjörtum þeirra voru tengdir og dældi hjarta annarra systurnar blóði í hjarta hinnar. Alls tóku sextíu og einn læknir og hjúkrunarfræðingar þátt í aðgerðinni sem þeir segja þá fyrstu sinnar tegundar. vísir.is 05.04.2007 |
