facebook

Afar persónubundið
Föstudagur, 18. Júlí 2008 11:13
thorbjorn_gudjonsson.jpg„STOÐNETIN eru mjög dýr, bæði hefðbundin stoðnet og lyfjahúðuð stoðnet, sem eru notuð erlendis í mjög miklum mæli. Hér er heilbrigð skynsemi látin ráða. Við notum minna af þessum dýru, lyfjahúðuðu stoðnetum en Bandaríkjamenn,“ segir Þorbjörn Guðjónsson hjartasérfræðingur hjá LSH. Hann segir hjáveituaðgerðir henta fólki með sykursýki og þrengingar í fleiri en einni æð, svo dæmi sé tekið. „Þetta er samt mjög persónubundið. Einföld þrengsl eru oftast mjög vel meðhöndluð með víkkunum. Þær breyta hins vegar ekki lífslíkum fólks með langvinna brjóstverki og kransæðasjúkdóma umfram hjáveituaðgerð.“

Morgunblaðið 18.07.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066