| Áhrif háþrýstings á æðaþelið |
| Föstudagur, 11. Apríl 2008 14:23 |
|
Heilbrigt æðaþel gegnir fjölmörgum hlutverkum. Best rannsakaða hlutverk þess er stjórnun blóðflæðis svo þörfum hinna ýmsu líffæra sé mætt. Æðaþelið gefur meðal annars frá sér efnin endotelin og angiotensin I sem herpa æðar, en einnig prostacyklín og köfnunarefnisoxíð (NO) sem berast yfir í aðliggjandi vöðvafrumur, víkka æðar og auka blóðflæði. Það má geta þess að uppgötvun NO sem boðefnis í hjarta- og æðakerfinu veitti rannsakendum Nóbelsverðlaun árið 1998. Heilbrigt æðaþel kemur einnig í veg fyrir bólgusvörun í æðum og hamlar bæði þykknun æðaveggsins og æðakölkun. Þá hefur æðaþelið einnig mjög mikilvægu hlutverki að gegna við að hindra viðheftingu blóðflaga við æðavegginn, en þar kemur NO einnig við sögu. Efni sem myndast og ýmist sitja á eða eru losuð frá æðaþelsfrumum hafa einnig mikla þýðingu fyrir myndun og upplausn blóðtappa í æðakerfinu. |

Þórdís Jóna Hrafnkellsdóttir sérfræðingur í lyf og hjartalækningum skrifar athygliverða grein í Velferð tímarit Hjartaheilla um æðaþelið og áhrif háþrýstings á það og birti ég hér greinina í heild sinni.