| Áhrif reykinga verri á konur en karla |
| Þriðjudagur, 02. September 2008 20:48 |
|
Frá þessu greinir fréttavefur Aftenposten. „Rannsóknin sýnir að það er greinilega munur milli kynjanna á þeim skemmdum sem tóbaksreykingar valda á æðum í og við hjartað,“ sagði dr. Morten Grundtvig, einn höfunda rannsóknarinnar. Hún var byggð á upplýsingum um 1.784 sem lagðir voru inn á sjúkrahús í Noregi vegna hjartaáfalls á árunum 1998 til 2005. Konur sem reykja fengu hjartaáfall að meðaltali 14 árum fyrr en þær sem ekki reykja. Meðal karla er sambærilegur munur aðeins sex ár.
Þetta kom í ljós þegar teknir höfðu verið með í reikninginn aðrir áhættuþættir hjartaáfalla, s.s. hár blóðþrýstingur, hátt kólesteról, sykursýki og fyrri áföll eða hjartaöng. |
