| Áhrifamikil og áhugaverð uppgötvun |
| Laugardagur, 05. Maí 2007 10:00 |
|
Af meira en sautján þúsund þátttakendum í rannsókninni, frá Íslandi og Bandaríkjunum, höfðu yfir 20% tvö eintök af afbrigðinu – eitt frá hvoru foreldri – sem samsvarar meira en 60% aukningu á hættu á hjartaáfalli ef miðað er við þá sem ekki eru með afbrigðið. Um helmingur fólks af evrópskum uppruna eru með eitt afbrigði. Vísindamenn ÍE hafa einnig sýnt fram á að erfðabreytileikinn hefur áhrif á hvort menn fái hjartaáfall ungir eða gamlir. Áhættan er tvöfalt meiri hjá karlmönnum undir fimmtugu og konum undir sextugu sem hafa tvö eintök af afbrigðinu en hjá þeim sem er ekki með breytileikann. Kári segir uppgötvunina sérstaklega áhrifamikla þegar kemur að hjartaáföllum hjá þeim sem yngri eru. "Það er það sem skiptir svo miklu máli því við sættum okkur ekki við þau hjartaáföll." Kári segir allt innsæi inn í myndun sjúkdómsins geta fræðilega hjálpað til við að finna aðferðir til að lækna og fyrirbyggja. Hjá ÍE er fyrsta skref að setja saman greiningartæki og verða niðurstöðurnar svo væntanlega nýttar við þróun þeirra lyfja sem fyrirtækið er komið af stað með. "Vegna þess að þetta mun gera okkur kleift að leita uppi fólk sem er í mikilli áhættu þegar við erum að setja saman okkar klínísku rannsóknir og það er hjá því fólki sem auðveldast er að sjá gagnsemi af lyfjum," segir Kári.
Töluvert hefur verið af uppgötvunum að undanförnu og segir Kári að margir spennandi hlutir séu jafnframt í vinnslu. Hann vonast því til að geta greint heiminum frá fleiri uppgötvunum, jafnvel á næstu vikum og mánuðum. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Morgunblaðið 04.05.2007 |
