facebook

Áhyggjur af sameiningu
Miðvikudagur, 06. Maí 2009 00:00
hjartaheillmerki.jpgHJARTAHEILL, samtök hjartasjúklinga, hafa ekki fengið kynningu á áformum Landspítalans um að sameina bráðamóttöku spítalans á einn stað í Fossvogi. Formaður Hjartaheilla, Guðmundur Bjarnason, segir það miður að ekki hafi verið leitað álits samtakanna og óttast hann að öryggi hjartasjúklinga sé teflt í tvísýnu.

„Það skiptir hjartasjúklinga afar miklu máli að gott samband sé á milli bráðamóttökunnar og hjartadeildarinnar, sem hefur verið í mikilli uppbyggingu, ekki síst fyrir tilstilli Hjartaheilla þegar safnað var fyrir nýju hjartaþræðingartæki og sett upp stórbætt aðstaða fyrir móttöku bráðasjúklinga. Það skiptir hver mínúta máli ef menn eru í bráðri þörf fyrir skoðun eða þræðingu,“ segir Guðmundur.

Hann segir Hjartaheill ekki leggjast gegn hugmyndum um hagræðingu en erfitt sé að sjá sparnað í því ef slíta eigi samskiptin milli bráðamóttökunnar og hjartadeildarinnar við Hringbrautina. Ekki sé mikið hagræði í því ef líka eigi að flytja hjartadeildina í Fossvoginn.

Bæði læknaráð og hjúkrunarráð Landspítalans hafa ályktað um málið og hvatt stjórn spítalans til að endurskoða áform sín um samruna á bráðamótttökum. Er rekstrarlegt hagræði af sameiningunni dregið í efa og m.a. bent á að skoða tillögur um nýja byggingu við Hringbraut.

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Morgunblaðið 06.05.2009 

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066