| Álag á bráðadeildum |
| Miðvikudagur, 16. Desember 2009 00:00 |
|
Davíð O. Arnar, yfirlæknir á bráðamóttökunni á Hringbraut, telur ekki tímabært að fullyrða að lokanir á legurýmum eigi einar og sér sök á auknu álagi á bráðamóttökunni, til þess þurfi að skoða ástandið yfir lengri tíma en tvær vikur. „Gerðar hafa verið ýmsar viðbótarráðstafanir til að mæta þessari fækkun legurýma og það þarf tíma til að slípa þær til. Hins vegar er ekki hægt að neita því að fækkun legurýma á sjúkrahúsinu er áhyggjuefni þar sem aðsóknin að bráðamóttökunni við Hringbraut hefur farið heldur vaxandi en hitt.“ Ekki óþekkt vandamál Að sögn Davíðs hefur verið mjög mikið að gera á bráðamóttökunni það sem af er desember. Komið hafi dagar þar sem erfitt hefur verið að finna legupláss á spítalanum fyrir þá sjúklinga sem hefur þurft að leggja inn. „Þetta er þó ekki alveg óþekkt vandamál hjá okkur. Það eru sveiflur í komum á bráðamóttöku og þegar mest er að gera getur tekið tíma að finna legupláss. Undir þeim kringumstæðum þarf að nýta allt tiltækt pláss á bráðamóttökunni og því miður kemur það fyrir að sjúklingar þurfi að liggja á göngum. Þeir hafa þó sýnt þessu mikinn skilning og starfsfólkið staðið sig mjög vel við oft erfiðar aðstæður,“ segir Davíð.Undir þetta tekur Anne Mette Pedersen, hjúkrunardeildarstjóri á bráðamóttökunni á Hringbraut. Komur þangað séu breytilegar og reglulega komi toppar eins og í síðustu viku. Við þessar aðstæður þurfi að forgangsraða verkefnum en tekist hafi að sinna öllum sjúklingum án þess að nokkur hætta stafaði af. Álag hefur sem fyrr segir einnig verið mikið á bráðamóttökunni í Fossvogi. Ófeigur T. Þorgeirsson yfirlæknir segir sjúklinga þar ekki hafa orðið fyrir óþægindum og öryggi þeirra ekki verið stefnt í hættu. Hildur Helgadóttir, innlagnastjóri Landspítalans, segir ástandið á spítalanum hafa verið vel viðráðanlegt þrátt fyrir aukið álag í haust vegna flensunnar og mikilla veikinda. Síðasta vika hafi vissulega verið erfið en deildirnar náð að anna álaginu. Verklaginu hafi verið breytt svo að hægt sé að bregðast við fækkun legurýma á spítalanum.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
