| Álag á starfsmenn Landspítala kannað |
| Mánudagur, 21. Desember 2009 00:00 |
|
Greindi ráðherra sjúkraliðum frá viðbrögðum sínum við ályktun félagsins á fundi, sem hún átti með fulltrúum félagsins og ungliðadeild. Heilbrigðisráðuneytið segir, að Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala, hafi látið hafa eftir sér af þessu tilefni að spítalinn sé betur mannaður nú en undanfarin ár, sjúklingum sé sinnt meira en í nóvember í fyrra og fleiri séu starfandi á spítalanum. Anna Stefánsdóttir segi m.a. í samtali við Morgunblaðið að fleiri hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar séu starfandi á bráðadeildum spítalans en undanfarin tvö ár og að samkvæmt könnun meðal starfsmanna telji þeir álag nú ekki vera þyngra en árið 2006. |
