| Algjör pattstaða – engir fundir og uppsagnir standa |
| Þriðjudagur, 15. Apríl 2008 09:14 |
|
Engir fundir hafa verið milli hjúkrunarfræðinganna og yfirstjórnenda LSH síðan 1. apríl sl. og engir fundir verið boðaðir á næstunni. „Þetta er algjör pattstaða,“ segir Þórdís. Ekkert heyrist frá stjórnendum. „Þeir halda sínu til streitu líka,“ segir hún. Á síðasta fundi hafi stjórnendur lagt fram tillögur sem Þórdís segir hjúkrunarfræðinga ekki hafa getað sætt sig við.
Fundur sem fulltrúar geislafræðinga á myndgreiningadeild Landspítala áttu með yfirstjórn spítalans nýverið skilaði ekki heldur árangri. Ætlar stjórn spítalans nú í vikunni að ræða einslega við hvern og einn geislafræðing. 30-40 geislafræðingar hafa sagt upp störfum, eða yfir 90% þeirra sem starfa á myndgreiningardeild LSH. Líta þeir svo á að uppsagnirnar taki gildi 1. maí nk. en stjórnendur spítalans telja hins vegar að þær muni ekki taka gildi fyrr en 1. júní nk. |
