| Alþjóðlegi hjartadagurinn |
| Laugardagur, 29. September 2007 11:11 |
|
Á Hálsatorgi í Kópavogi verður í fyrsta sinn hlaupið Hjartadagshlaupið sem er tímamælt hlaup með 3 hlaupalengdum, 3, 5 og 10 km. Auk þess verður Hjartaganga um sögustaði Kópavogs undir leiðsögn Björns Þorsteinssonar. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun taka þátt í göngunni. Skemmtidagskrá hefst á sviði kl. 13 þar sem meðal annars verða veitt verðlaun fyrir Hjartadagshlaupið, Hara systur syngja og persónur úr Söngleiknum Gretti skemmta og Sveppi verður kynnir.
Hægt er að lesa um Alþjóðlega hjartadaginn á www.worldheartday.com og á www.hjarta.is . |
