| Alþjóðlegur hjartadagur 2007 |
| Mánudagur, 17. September 2007 15:04 |
|
Í tilefni Alþjóðlega hjartadagsins verður haldin opin ráðstefna í Salnum Kópavogi þann 27. september sem hefst klukkan 18:00. Ráðstefna verður haldin fyrir allan almenning í Salnum fimmtudaginn 27. september þar sem ýmsir sérfræðingar halda erindi um helstu áhættuþætti hjarta og æðasjúkdóma. Ráðstefnan hefst klukkan 18:00 og þátttaka ókeypis. Nánar má lesa dagskrána með því að smella hér Alþjóðlegi hjartadagurinn þann 30. september – Hálsatorgi Kópavogi Hjartadagshlaupið ( 3, 5 og 10 km). Ræst verður í 3 km hlaupið frá Hálsatorgi klukkan 10:50 en klukkan 11:00 í 5 og 10 km. Í 5 og 10 km er ræst frá Bókasafni Kópavogs á Hálsatorgi. Nánari upplýsingar og skráning í hlaupið er hér. Hjartagangan hefst klukkan 11:10. Gengið verður um Kópavog undir leiðsögn Björns Þorsteinssonar 11:30 Hjartahreysti-þrautabraut fyrir unglinga á Hálsatorgi - Hoppukastalar fyrir yngstu börnin á Hálsatorgi
Skemmtidagskrá á Hálsatorgi hefst klukkan 13:00
Stöndum saman og tökum þátt í Alþjóðlega hjartadeginum |
