| Alvarlegt að fresta nýbyggingu |
| Sunnudagur, 08. Júní 2008 10:00 |
|
Kristján Þór Júlíusson, varaformaður fjárlaganefndar segir sterklega koma til greina að fresta byggingu nýs Háskólasjúkrahúss vegna halla á ríkissjóði. Björn Zoega segist vona að ekki verði gripið til þess ráðs enda verði nýtt sjúkrahús þjóðhagslega hagkvæmt. Björn segir að verði byggingu nýs háskólasjúkrahúss slegið á frest dragi það úr hagkvæmni rekstursins og seinki sameiningu starfseminnar.. Björn Zöega, starfandi forstjóri Landspítalans segir það þjóðhagslega óhagkvæmt að fresta byggingu nýs Háskólasjúkrahúss. Mikið af starfsemi sjúkrahússins bíði þess að komast í sameiginlegt húsnæði.
Það kom fram í hádegisfréttum útvarpsins að ríkið stendur frammi fyrir því að þurfa að skera verulega niður útgjöld á næstu árum. Spáð er tæpum þrjátíu og fimm milljarða króna halla ríkissjóðs fram til ársloka tvö þúsund og tíu. |
