facebook

Ályktun stjórnar FÍH gegn áfengisfrumvarpi
Miðvikudagur, 07. Nóvember 2007 10:04
Multithumb found errors on this page:

There was a problem loading image /u03/usrhome/hjartali/public_html/images/stories/skraning_250pix.jpg
skraning_250pix.jpgStjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ályktaði eftirfarandi á fundi sínum þann 5. nóvember 2007:  Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) skorar á alþingismenn að standa vörð um forvarnarstefnu í áfengismálum og greiða atkvæði gegn frumvarpi til laga um breytingu ýmissa lagaákvæða sem varða sölu áfengis og tóbaks. Áfengisvandinn er vaxandi heilbrigðisvandamál hér á landi og kostnaður samfélagsins vegna hans fer vaxandi.  Í gögnum frá Lýðheilsustöð kemur fram að áætlaður heildarkostnaður þjóða af völdum áfengisneyslu sé á bilinu 1-3% af þjóðarframleiðslu.     Áfengi hefur neikvæð áhrif á fjölda sjúkdóma, er oft orsakaþáttur í slysum og getur haft veruleg neikvæð samfélagsleg áhrif.   Áfengisneysla á meðgöngu hefur skaðleg áhrif á þroska barnsins og síðar á fullorðinsárum.  Rannsóknir hafa sýnt að samband er á milli aðgengis að áfengi og neyslu.  Aukið aðgengi að áfengi mun án efa leiða til aukinnar áfengisneyslu unglinga og annarra einstaklinga í áhættuhópum.   

Í Heilbrigðisáætlun til ársins 2010, sem samþykkt var samhljóða á Alþingi þann 20. maí 2001, eru áfengis-, vímuefna- og tóbaksvarnir settar fram sem fyrsta markmið.  Þar eru sett fram markmið um að minnka heildarneyslu áfengis hér á landi og ekki síður að vinna gegn neyslu ungs fólks.  Að mati stjórnar FÍH vinnur umrætt frumvarp gegn þessum markmiðum Heilbrigðisáætlunarinnar.

www.hjukrun.is

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066