| „Ánægjuleg þróun“ |
| Föstudagur, 27. Júní 2008 13:38 |
|
„ÞETTA er ánægjuleg þróun,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra um nýja samantekt Landlæknisembættisins á biðlistum eftir völdum aðgerðum á sjúkrahúsum landsins sem sýnir að biðlistar hafa almennt styst milli mælinga. „Þegar maður skoðar þessar tölur og þróunina er augljóst að starfsmenn og nýir stjórnendur Landspítalans sem og Vilhjálms-nefndin hafa staðið sig mjög vel,“ segir Guðlaugur Þór. Rifjar hann upp að heilbrigðisyfirvöld hafi í samráði við landlækni ákveðið að biðlistatölur yrðu birtar reglulega, annars vegar til að upplýsa almenning en ekki síður til þess að veita heilbrigðisyfirvöldum nauðsynlegt aðhald.
Aðspurður segist Guðlaugur Þór vissulega hafa áhyggjur af því að yfirvinnubannið verði að veruleika. „Ég vonast til þess að samningsaðilar nái saman og ekki komi til yfirvinnubannsins því það myndi hafa mjög slæm áhrif og væntanlega hafa neikvæð áhrif á þann góða árangur sem við höfum náð í því að stytta biðlista eftir aðgerðum.“ |
