| Aukakílóin lengja lífið |
| Laugardagur, 30. Janúar 2010 12:50 |
|
Grein um rannsóknina birtist í blaðinu Journal of the American Geriatric Society og þar kemur fram, að það sé ekki hollt fyrir fólk sem komið er yfir sjötugt, að fara í megrun. Fram kemur einnig, að kyrrsetur stytti lífið. Í rannsókninni, sem gerð var á vegum háskóla í Ástralíu, var markmiðið að rannsaka samband þyngdar og langlífis. ´ Í ljós kom, að þeir sem voru skilgreindir sem heldur of þungir lifðu að jafnaði lengur en aðrir og hættan á að þeir fengju tiltekna sjúkdóma, svo sem hjartasjúkdóma, krabbamein og króníska öndunarfærasjúkdóma voru einnig minnstar. Á vef BBC er haft eftir Leon Flicker, sem stýrði rannsókninni, að hún bendi til þess, að líkamsfita hafi önnur áhrif á þá, sem náð hafi áttræðisaldri en yngra fólk. |
