| Auknar líkur á læknamistökum |
| Laugardagur, 12. Febrúar 2011 00:00 |
|
Vilhelmína segir að reynt sé að vinna sem best úr stöðunni en hún sé þó áhyggjuefni. Það þurfi alltaf að hafa áhyggjur þegar mikið sé að gera og mikið álag sé á starfsfólkinu. Þorbjörn Jónsson, formaður læknaráðs Landspítalans tekur undir það. Í könnuninni hafi komið fram að læknar segjast ekki geta lokið verkefnum á fullnægjandi hátt. Þegar færri vinni verkin þurfi menn hreinlega að vinna hraðar og lengur. Þá sé kannski ekki nægilega mikill tími til að liggja yfir hverju verki og hverri ákvörðun.
www.ruv.is 12.02.2011 |
