facebook

Bandarískur maður lést í fjallgöngu
Mánudagur, 09. Mars 2009 19:40

tronador.jpgUngur, bandarískur leiðsögumaður á þjálfunarnámskeiði í Argentínu lét lífið og tveir aðrir slösuðust í göngu á fjallið Tronador í suðvesturhluta landsins. Nokkrir úr hópnum féllu ofan í 20-25 metra breiða jökulsprungu að sögn yfirvalda í Nahuel Huapi þjóðgarðinum.

Maðurinn sem lést var 25 ára gamall og fór fyrir hópi 11 nema á aldrinum 18 til 23 ára. Að sögn lækna lést hann úr áfallatengdri hjartabilun. Þetta er sjöundi fjallgöngumaðurinn sem látist hefur tveimur mánuðum í Argentínu.

www.mbl.is 09.03.2009

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066