| Bankakreppa eykur hættu á hjartaáföllum |
| Þriðjudagur, 26. Febrúar 2008 13:19 |
|
Frá þessu greinir fréttavefur BBC, en rannsóknin er birt í vísindaritinu Globalization and Health. Niðurstöður rannsóknarinnar leiða m.a. í ljós, að þegar kreppir að á fjármálamarkaði í þróuðu ríki eykst tíðni hjartaáfalla um 6,4%. Meðal krepputímabila sem rannsóknin beindist að, á tímabilinu 1960-2002, voru sparisjóðshneykslið í Bandaríkjunum 1985 og fjármálakreppan í Svíþjóð í byrjun síðasta áratugar.
Dánartíðni af völdum hjartaáfalls jókst „í skamman tíma og mjög reglubundið“ í hvert sinn sem erfiðleikar steðjuðu að bankakerfinu. |
