| Bee Gees hollir hjartanu |
| Laugardagur, 18. Október 2008 11:25 |
|
Hjartahnoð getur bjargað mannslífum en margir eru óöruggir við að beita því þar sem þeir eru óvissir um hversu hratt það skuli framkvæmt. Rannsóknir hafa nefnilega sýnt að yfirleitt er hnoðað of hægt til þess að það skili árangri. Í rannsókn á vegum Dr. David Matlock við læknaháskólann í Illinois reyndist Stayin' Alive skila prýðisárangri við að halda réttum hraða. Jafnvel dygði að raula lagið með sjálfum sér við hnoðið til að halda taktinum. |
