facebook

Betri lífslíkur eftir hjartaáfall
Þriðjudagur, 19. Febrúar 2008 10:45
skurdstofa.jpgHollenskir vísindamenn við háskólasjúkrahúsið Medical Center Groningen hafa uppgötvað nýja aðferð til að lengja lífslíkur þeirra sem fengið hafa hjartaáfall.

Felst hún í því að fjarlægja blóðkökkinn sem stíflar æðina til hjartans í stað þess að ýta honum til hliðar. Dánartíðni þeirra sem fengið hafa hjartaáfall er ekki há, en þessi uppgötvun gæti hins vegar nýst sem áfangi í bættum lækningaaðferðum.

Við rannsóknina var notast við gögn um 1.071 sjúkling sem lagðist inn á árunum 2005 til 2006.

Fréttablaðið 19.02.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066