| Bið eftir hjartaþræðingu styttist |
| Föstudagur, 27. Júní 2008 16:12 |
|
Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Landlæknisembættinu um biðlista eftir aðgerðum á sjúkrahúsum hér á landi miðað við 1. júní. Aldrei áður hafa verið gefnar út tölur svo skömmu eftir viðmiðunardagsetninguna. Þá telst einnig markvert að nú sendir St. Jósefsspítali í Hafnarfirði tölur í fyrsta sinn. Skiptir það einkum máli fyrir tvær tegundir biðlistaaðgerða, sem þar eru gerðar í talsvert miklum mæli, annars vegar aðgerðir á augasteini, en hins vegar kvensjúkdómaaðgerðir, að því er segir á vef Landlæknisembættisins. Styttri bið eftir brjóstaminnkun Meðal annarra biðlista sem halda áfram að styttast má nefna listann á háls-, nef- og eyrnadeild og lista lýtalækningadeildar vegna brjóstaminnkunaraðgerða, en þar er í raun ekki um eiginlegar lýtaaðgerðir að ræða heldur aðgerðir vegna mikilla álagseinkenna sem konur hafa af mjög stórum brjóstum. Eins og áður bíður allstór hópur fólks eftir aðgerð vegna skýs á auga. Nýlega gerði heilbrigðisráðherra samning við augnlæknastofur um þessar aðgerðir, en áhrifa þess er varla farið að gæta á listum sjúkrahúsanna enn sem komið er. Biðlisti eftir gerviliðaaðgerðum lengist
Eini biðlistinn sem lengist svo nokkru nemur er vegna gerviliðaaðgerða á hnjám. Fjöldi þessara aðgerða eykst jafnt og þétt. Kemur þar einkum tvennt til. Annars vegar verður fólk æ þyngra og því fylgja aukin álagseinkenni í hnjám og hins vegar verða aðgerðirnar sífellt öruggari þannig að breiðari aldurshópur fer í slíkar aðgerðir. |
