| Björn Zoëga ráðinn framkvæmdastjóri lækninga |
| Föstudagur, 13. Febrúar 2009 08:39 |
|
Forstjóri Landspítala ræður framkvæmdastjóra lækninga samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu 2007 nr. 40 27. mars. Í niðurstöðu Huldu Gunnlaugsdóttur forstjóra Landspítala segir að þyngst vegi í ráðningu Björn Zoëga reynsla hans umfram aðra umsækjendur í ákvarðanatöku á efsta stigi stjórnunar á Landspítala á umbreytingartímum.
Björn lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands árið 1990, sérfræðinámi árið 1996 og doktorsprófi frá háskólanum í Gautaborg og Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu árið 1998. Hann lauk lauk stjórnunarnámi á vegum háskólans í Gautaborg og Sahlgrenska háskólasjúkrahússins árið 1999. Björn sinnti síðan stjórnun á sviði bæklunarskurðlækninga 1999-2002 í Gautaborg. Hann var ráðinn yfirlæknir á LSH í lok árs 2002 og var síðan valinn sviðstjóri skurðlækningasviðs LSH árið 2005. |
