| Blóðfitulækkandi lyf fyrir alla? |
| Miðvikudagur, 15. Ágúst 2007 12:12 |
|
Kortlagning áhættuhópaSjúkdómar þessir, sem oft eru tengdir mikilli velmegun á Vesturlöndum, hafa kallað á aðgerðir í þessum málum og nú leggur forstjóri deildar hjartasjúkdóma í Bretlandi, Roger Boyle, til að öllum körlum yfir fimmtugu og öllum konum yfir sextugu verði gefin blóðfitulækkandi lyf. Aðgerðin sem líkja má við teppalagningu, þ.e. að allir á tilteknu aldursbili fái lyfin, óháð einkennum, ætti að borga sig fyrir þjóðfélagið í lækkun dauðsfalla, minni útgjöldum heilbrigðiskerfisins og tímasparnaði.Þannig kemur fram sjúklingar frá þrjátíu árum að aldri, sem eru í áhættuhóp, gætu notið góðs af lyfjagjöf þar sem eins konar "fjölpilla" er notuð en þar er blandað saman fólín-sýru, aspiríni, blóðþrýstingslyfjum og svo blóðfitulækkandi lyfjum. Það er talið að 85% þeirra sem eru í áhættuhópnum hafi engin einkenni og eru því ómeðvitaðir um áhættuna. Þannig segir í fréttinni að það ætti að skoða milljónir manna til að ákvarða hve margir myndu njóta góðs af því að taka blóðfitulækkandi lyf. Til viðbótar ættu karlar á aldrinum 50-55 og konur á aldrinum 60-65 einnig að fá blóðfitulækkandi lyf. En árið 2003 hafi hópur vísindamanna komist að því að hægt væri að draga úr áhættunni á því að fá hjartaáfall um 80% ef lyfið væri tekið af öllum yfir 55 árum að aldri.
Prófessor Boyle telur þó að almenningur sé ekki tilbúin til þess að allir fái lyf til að taka á hverjum degi. Einnig séu yfirvöld meðvituð um það að forsjárhyggja sé ekki af hinu góða og því sé almenningi nauðsynlegt að hafa val þegar kemur að málum sem þessum. |
