facebook

Borgar sig að biðjast afsökunar
Mánudagur, 19. Maí 2008 11:16
laeknir.jpgLÖGMENN sem gefa sjúkrahúsum í Bandaríkjunum ráð vegna málsókna sjúklinga í kjölfar mistaka, eru sumir hættir að segja þeim að neita sekt en gangast þess í stað við mistökum þegar þau hafi verið gerð. Segja þeir að ástæða þess að sjúklingur höfði mál sé oft að hann sé hneykslaður á því að reynt hafi verið að leyna mistökunum og hafi áhyggjur af því að sams konar atburðir muni endurtaka sig.

Þetta nýja viðhorf til læknamistaka er nú við lýði á sjúkrahúsi Illinois-háskóla í Chicago, að sögn The New York Times. Tapas K. Gupta, 76 ára gamall krabbameinsskurðlæknir, segist nýlega hafa viðurkennt slæm mistök. Hann hafi fjarlægt hluta úr öðru rifi í konu en ætlunin hafi verið.

„Eftir öll þessi ár get ég samt ekki gefið ykkur neina skýringu,“ sagði hann þegar hann ræddi við konuna og eiginmann hennar. „Þetta er bara nokkuð sem gerist. Ég hef í einhverjum mæli valdið þér skaða.“

Reynslan af þessari hreinskilni á spítölum er að sögn ráðamanna þeirra að minna er um málshöfðanir og útgjöld vegna skaðabóta hafa minnkað. Fleira en nýja stefnan getur þó hafa haft áhrif, m.a. að skaðabætur hafa almennt lækkað. Rannsóknir gefa til kynna að einn af hverjum 100 sjúklingum að meðaltali fái óviðunandi meðferð.

Morgunblaðið 19.05.2008 

 

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066