| Bretar ráðast til atlögu við hjartasjúkdóma og heilablóðföll með landsátaki |
| Laugardagur, 26. Janúar 2008 10:42 |
|
FRAMTÍÐIN í baráttunni við hjarta- og æðasjúkdóma liggur í fyrirbyggjandi aðgerðum. Þetta er mat enska prófessorsins Rogers Boyle, sem hélt erindi um blóðfitulækkandi lyf og hlutverk þeirra í nýju átaki breskra stjórnvalda gegn hjartasjúkdómum og heilablóðföllum á Læknadögum. Dr. Boyle starfaði sem hjartasérfræðingur á enskum sjúkrahúsum frá árinu 1972 til 1990, þegar hann tók að starfa fyrir stjórnvöld. Árið 2000 var hann svo skipaður yfirmaður málefna hjartasjúkdóma í breska heilbrigðisráðuneytinu og hefur stýrt landsátaki gegn hjartasjúkdómum og heilablóðföllum síðan 2006, sem felst meðal annars í róttækum aðgerðum á sviði fyrirbyggjandi læknisfræði. Erindi hans bar yfirskriftina „statín“ sem er heiti á blóðfitulækkandi lyfjum.
„Ég er í raun tengiliður á milli fagfólksins og stjórnvalda. Mitt starf gengur út á að beina hugsjónum stjórnmálamanna og þekkingu fagfólks í sama farveg. Með því að sameina þessa tvo hópa er hægt að skapa öflugt tæki til að bæta lífskjör almennings. Þetta getur verið erfitt hlutverk en við erum þó í sterkri stöðu. Heilbrigðisþjónustan er stórmál í breskum stjórnmálum og allir vilja standa sig vel í þeim málum. Stjórnmálamennirnir eru því mjög móttækilegir fyrir nýjum hugmyndum ef sýnt er fram á að þær séu skilvirkar.“ Vonast er til að hægt verði að ná til milljóna manna sem eru í áhættuhópum án þess að vita af því og gefa þeim kost á fyrirbyggjandi meðferð, eða aðstoð við að bæta lífsstílinn, sem kemur í veg fyrir alvarleg áföll síðar, eða seinkar þeim um ár eða áratugi. Þannig verði heilsufarsástand fólks greint, það spurt spurninga um mataræði, hreyfingu, reykingar og fleira slíkt. Magn kólesteróls í blóði mælt og svo framvegis.
Kostnaðurinn af landsátaki sem þessu verður gríðarlegur, að hans sögn, enda fólksfjöldinn nálægt fimmtíu milljónum. Fara þurfi í umfangsmiklar fjölmiðla- og auglýsingaherferðir til þess að kynna átakið og fræða fólk um sjúkdómana. „Svona aðferðir eru til og eru í notkun á fleiri stöðum, en þetta er róttæk hugmynd að því leyti að við viljum beita henni kerfisbundið á heila þjóð. Það hefur aldrei verið gert áður. Forsætisráðherrann hefur sagt að við getum hafist handa innan nokkurra mánaða og nú er í gangi ítarleg efnahagsleg greining til þess að kveða upp úr um hvaða aðferðir verða notaðar. Þetta er bæði læknisfræðileg, pólitísk og fjárhagsleg ákvörðun.“ Markmiðið með átakinu er að ná enn frekari seinkun hjarta- og æðasjúkdóma á æviferli fólks. Nú þegar hefur þeim verið seinkað mikið en helst þarf, að mati prófessorsins, að seinka þeim fram í svo háa elli að þörfin fyrir kostnaðarsamar aðgerðir eins og hjáveituaðgerðir og kransæðavíkkun minnki. „Englendingar eyða nú þegar meira fé í þessa sjúkdóma en önnur Evrópulönd, að Þýskalandi frátöldu.“ Hann nefnir sem dæmi að Finnar eru í sjötta sæti og eyða um 22.000 krónum á hvert mannsbarn á hverju ári, Svíar eru í þriðja sæti og eyða um 30.000 krónum og Englendingar um 33.000 krónum.
Og dr. Boyle mælir með svipuðu átaki fyrir Íslendinga. „Ég held að þið séuð í enn betri stöðu en við til að gera þetta. Þið hafið fleiri hjartalækna og fleira heilbrigðisstarfsfólk miðað við fólksfjölda og auðvitað mun færra fólk. Ég tók strax eftir því við komuna hingað að hér er mikið af skyndibitastöðum. Við Englendingar höfum fetað þá slóð á undan ykkur og erum nú næstfeitasta þjóð í heimi. Ég mæli ekki með því.“ „Fólk einfaldlega veit ekki, en samt hefur þetta vandamál líklega haft slæm áhrif á hverja einustu fjölskyldu í landinu.
Viðkvæðið er líka oft á þá leið að það sé engin ástæða til að fresta hjartveiki fram í háa elli því betra sé að detta niður dauður einn daginn úr hjartaáfalli en að deyja hægum dauðdaga úr krabbameini. En það er ekkert sem styður þessa fullyrðingu! Nú til dags deyr fólk síður úr hjartaáföllum. Miklu frekar eru líkur á því að hjarta fólks skemmist sem skerðir lífsgæði þess og gerir það vansælt. Svo einfalt er það. Þar að auki styður ekkert þá fullyrðingu að fleiri deyi úr krabbameini eftir því sem færri látast fyrir aldur fram af völdum hjartasjúkdóma, ekki ensk gögn í það minnsta. Við viljum sýna að með einföldum aðgerðum, betra líferni og betri meðferð er hægt að ná fram miklum árangri. Við sem stöndum fyrir þessu landsátaki erum ekki boðberar válegra tíðinda, heldur þvert á móti.“ |
