| Breytileiki í erfðavísi tengist æðagúlpum |
| Mánudagur, 07. Janúar 2008 22:54 |
|
Grein um rannsóknirnar birtist á vef vísindatímaritsins Nature í gær. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, segir í tilkynningu að niðurstöðurnar styrki ekki aðeins þær niðurstöður, sem birtust um þennan breytileika á síðasta ári varðandi aukna hættu á hjartaáföllum, heldur bendi til þess að breytileikinn hafi áhrif á það hvernig æðaveggirnir bregðast við öðrum áhættuþáttum. Kári segir, að þessar niðurstöður verði m.a. teknar inn í rannsóknir, sem fyrirtækið gerir á erfðamengi einstaklinga.
Greinin í Nature |
