| Breytingar á þjónustu við hjartasjúklinga á Landspítala |
| Þriðjudagur, 13. Apríl 2010 09:45 |
|
Í dag, 13. apríl, verða breytingar á þjónustu við hjartasjúklinga á Landspítala. Þessar breytingar koma í kjölfar sameiningar á bráðamóttöku við Hringbraut og slysa- og bráðadeildar í Fossvogi. Ný bráðadeild er í húsnæði slysa- og bráðadeildar í Fossvogi. Í því húsnæði sem bráðamóttakan við Hringbraut var áður og í aðliggjandi húsnæði mun ný hjartamiðstöð taka til starfa. Þessi eining mun sinna fjölþættri þjónustu við hjartasjúklinga, þar með talið bráðaþjónustu, dagdeildarstarfsemi og göngudeildum. Deildin verður opin frá klukkan átta á mánudagsmorgnum til klukkan 20 á föstudagskvöldum. Allri bráðaþjónustu við þá sem hafa einkenni frá hjarta verður sinnt á Hringbraut á þessum tíma en eftir lokun á föstudagskvöldum fram á mánudagsmorgna verður bráðaþjónusta við þennan sjúklingahóp á bráðadeildinni í Fossvogi. |
