| Breytti um blóðflokk eftir lifrarígræðslu |
| Fimmtudagur, 24. Janúar 2008 00:00 |
|
Demi-Lee Brennan var níu ára gömul er hún veiktist alvarlega eftir að lifur hennar hætti að starfa. Fékk hún nýja lifur og níu mánuðum síðar kom í ljós að hún var ekki lengur í sama blóðflokki og áður heldur í þeim blóðflokki sem lifrargjafinn var í. Að sögn Michael Stormon, læknis stúlkunnar, sem er orðin 15 ára, er hún heil heilsu en enn í þeim blóðflokki sem lifrargjafinn var í er hún fékk lifrina frá fyrir sex árum síðan. Að sögn Stormon er ekki vitað til að slík blóðflokkaskipti hafi áður átt sér stað við lifrarígræðslu. Fjallað er um þetta í bandaríska læknatímaritinu New England Journal of Medicine sem kemur út í dag. |
