facebook

Brjóstgjöf minnkar líkur á hjartakvillum
Þriðjudagur, 22. Desember 2009 22:20
brjostagjofMæður sem hafa börn sín á brjósti eru mun líklegri til að sleppa við ýmsa hjartakvilla seinna á lífsleiðinni heldur en þær mæður sem hafa börn sín ekki á brjósti. Vísindamenn hafa rannskað þessi tengsl og náði rannsóknin til kvenna á aldrinu 45 til 58 ára sem höfðu eignast í það minnsta eitt barn.
Rannsóknin er ein af mörgum sem segja tengsl vera á milli brjóstgjafar og heilsu kvenna seinna á lífsleiðinni. Segja vísindamennirnir sem sáu um rannsóknina að konur ættu að hafa börn sín á brjósti í þrjá mánuði til að minnka hættuna á hjartakvillum seinna á lífsleiðinni.

www.dv.is 22.12.2009

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066