| Brown veldur deilum - vill breyta reglum um líffæragjafir |
| Mánudagur, 14. Janúar 2008 11:40 |
|
Brown segir þetta muni bjarga lífi þúsunda sjúklinga sem bíða nýrra líffæra. Svo framarlega sem hinir látnu hafi ekki beinlínis bannað að líffæri þeirra yrðu notuð væri ekkert til fyrirstöðu að nýta þau, segir Brown.
Hann segir breytingarnar myndu gera það að verkum að langir biðlistar væru úr sögunni og bendir á Spán sem fyrirmynd þar sem reglur eru með þeim hætti að hlutfallslega flest líffæri látna eru nýtt. |
