| Brýnt er að fjölga líffæragjöfum |
| Þriðjudagur, 17. Júlí 2007 10:37 |
|
Til þessa hefur verið unnt að mæta vel þörf íslenskra sjúklinga fyrir líffæraígræðslu, meðal annars vegna drjúgs framlags lifandi nýragjafa. Í framtíðinni má búast við aukinni þörf fyrir líffæri frá látnum gjöfum hér á landi. Því er brýnt að unnið verði að því að fjölga líffæragjöfum. Til að það megi takast þarf samstillt átak með áherslu á umræðu og fræðslu meðal almennings og þjálfun fagaðila sem gegna því erfiða hlutverki að óska eftir líffæragjöf. Einnig er mikilvægt að lögum um brottnám líffæra til ígræðslu verði breytt þannig að í stað ætlaðrar neitunar verði gert ráð fyrir ætluðu samþykki. Hér ættu að vera kjöraðstæður til að gera líffæragjöf að eðlilegum þætti tilverunnar þar sem íslenska þjóðin er fámenn, einsleit, vel upplýst og samheldin. Íslendingar búa við gott aðgengi að heilbrigðisþjónustu sem býður upp á öll helstu meðferðarúrræði sem völ er á í baráttu við sjúkdóma, þar á meðal líffæraígræðslur. Þeir sem vilja þiggja ígræðslu líffæris þegar þörf krefur ættu jafnframt að vera reiðubúnir að gefa líffæri sín við andlát. Höfundur er yfirlæknir nýrnalækninga á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Fréttablaðið 17.07.2007 |
