| Bylgja Kærnested deildarstjóri hjartadeildar 14E/G |
| Miðvikudagur, 01. Desember 2010 00:00 |
|
Bylgja hóf störf á hjartadeild við Hringbraut árið 1997, sinnti almennum hjúkrunarstörfum, kennslu nemenda og tók þátt í ýmsum þróunarverkefnum á deildinni. Auk starfa á hjartadeildinni var Bylgja verkefnastjóri endurlífgunarnefndar frá 2005-2008. Bylgja var formaður hjúkrunarráðs frá 2008-2010. Bylgja Kærnested lauk BSc prófi í hjúkrunarfræði frá hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands árið 1997 og M.S prófi í hjúkrunarstjórnun frá sama skóla árið 2006. www.landspitali.is 01.12.2010 |
