| Claude Berri látinn |
| Mánudagur, 12. Janúar 2009 15:49 |
|
Þekktustu myndir eftir Claude Berri eru eflaust Jean de Florette og Manon de Sources sem leikstjórinn gerði eftir skáldsögum eftir Marcel Pagnol. Berri framleiddi myndina Tess sem Roman Polanski leikstýrði. Le Vieil l´Homme et l´Enfant var sveinsstykki Berri. Á síðasta ári gerði hann kvikmyndina Bienvenue Chez les Ch'tis sem vakti mikla athygli. Berri fékk Óskarsverðlaunin árið 1963 fyrir stuttmyndina Le Poulet. Hann vann með mörgum af helstu leikurum Frakklands, svo sem Yves Montand, Gerard Depardieu og Emmanuelle Beart. Hann var að vinna við tuttugustu kvikmynd sína, gamanmyndina Tresor. Upplýsingar um Berri á Wikipedia
|
