| Compton í toppbaráttu eftir tvær hjartaígræðslur |
| Sunnudagur, 01. Ágúst 2010 00:00 |
|
Compton fékk nýtt hjarta í fyrra skiptið þegar hann var 12 ára gamall en hjarta hans var óstarfhæft vegna sjúkdóms. Fyrir tveimur árum fékk hann aftur nýtt hjarta. Árangur hins Compton á golfvellinum hefur vakið athygli en hann er ekki með fullan keppnisrétt á PGA mótaröðinni og fær því boð frá styrktaraðilum um að taka þátt. Compton á norska móður og er með norskt ríkisfang. Hann hefur reynt að fá reglum um notkun á golfbílum breytt á PGA mótaröðinni. Fyrir ári síðan óskaði Compton eftir undanþágu til þess að fá að nota golfbíl í úrtökumóti PGA en þeirri ósk var hafnað. |
