| Dagdeild opnuð á Hjartagátt |
| Fimmtudagur, 07. Október 2010 00:00 |
|
Dagdeildin, sem er 7 rúma, verður staðsett á 10W við hlið bráða- og göngudeildareininga Hjartagáttar á 10D. Breytingar hafa farið fram á húsnæðinu á síðustu vikum en þar var áður hluti af röntgendeildinni. Dagdeildinni er ætlað að sinna sjúklingum sem eru innkallaðir í ýmsar rannsóknir og inngrip á hjarta, þar á meðal kransæðaþræðingum, kransæðavíkkunum, brennslu á aukaleiðsluböndum, gangráðsísetningum og rafvendingum. Hjartagátt tók til starfa síðastliðið vor og er hlutverk hennar að sinna öllum þáttum „ambúlant“ hjartalækninga; bráðaþjónustu, göngudeild og dagdeild. Bráðaþjónusta fyrir sjúklinga með einkenni frá hjarta er opin allan sólarhringinn 5 daga vikunnar, frá klukkan 8:00 á mánudagsmorgnum til klukkan 20:00 á föstudagskvöldum. Bráðaþjónusta fyrir hjartasjúklinga er á bráðamóttökunni í Fossvogi um helgar. Stjórnendur Hjartagáttar eru Davíð O. Arnar yfirlæknir og Kristín Sigurðardóttir deildarstjóri.
|
