| Dauðsfall rakið til kvikmyndarinnar Avatar |
| Miðvikudagur, 20. Janúar 2010 10:04 |
|
Maðurinn sem hét Kuo, er sagður hafa byrjað að finna fyrir óþægindum meðan á sýningunni stóð og kvartaði hann meðal annars undan verkjum fyrir brjósti. Hann taldi óþægindin þó minniháttar en annað kom í ljós þegar hann var nokkrum dögum síðar fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús þar sem hann lést skömmu eftir komu sína þangað. Vakthafandi læknir sagði við fjölmiðla að líklega hefði spennan einfaldlega verið of mikil þar sem maðurinn var veikur fyrir. |
